23 janúar 2006

Making love to his ego

Jamm og jæja.
Hef fráleitt verið nógu duglegur við færslur. Hvort sem um er að kenna meirir vinnu eða andlegri fátækt skal ósagt látið. Finnst ég bara ekki hafa tíma.

Um helgina bara það einn helst til tíðinda að Menn Ársins léku á Holtakránni í Grafarholti. Þar stóð yfir þrítugsafmæli og þegar við hófum leik mátti skynja all-nokkra kæti í viðstöddum. Þar voru íþróttafréttamenn í öllum hornum (veit ekki ástæður þess). Samúel Örn klappaði Tóta hátt og lágt og sagðist biðja kærlega að heilsa Fjalari. Ég lét það nú alveg eiga sig að leiðrétta misskilninginn þangað til rofaði til hjá Tóta sem lengi vel vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Sorrí Tóti.

Hvað um það, nú hef ég sem sagt spilað Ziggy Stardust með Adolf Inga Erlingsson sem söngvara. Og það sem meira er hann gerði það bara ágætlega.

Myndina þá arna tók Diddi, reyndar á Café Aroma fyrir skemmstu en eins og sjá má þá er aðstaða listamanna þar alveg til fyrirmyndar.

PS: Knattspyrnufélag Liverpúlborgar óskar eftir að gefa franskan framherja til góðgerðarmála. Sendum heim.

3 Comments:

Blogger Refsarinn said...

Hver trúir á tilviljanir? Ekki ég.
Frí heimsending er líklega það sem þarf. Ef hann er ekki kominn til þín innan 30 mín. fylgir pizza með í kaupbæti.

mánudagur, 23 janúar, 2006  
Blogger BbulgroZ said...

Ja þetta eru stórtíðindi úr bæði íþrótta og tónlistarheiminum að Adolf Ingi skuli stíga á stokk og gera það bara ágætlega.

mánudagur, 23 janúar, 2006  
Blogger arngriv said...

Ég var víst búinn að segja þér þetta!

mánudagur, 23 janúar, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters