03 febrúar 2006

Hingað og ekki lengra


Líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd þá hefur maður nokkur, Elías Knútur Kirkegaard, garðyrkjumaður frá Eskifirði, ráðist að mér sem persónu og öllu því sem mér finnst heilagt og svívirt það opinberlega með birtingu sömu myndar í árshátíðarsönghefti trésmiðjunnar á Eskifirði. Ekki aðeins höfum við í fjölskyldunni fordæmt myndbirtinguna heldur og að sjálfsögðu, höfum við hvatt alla meðlimi fjölskyldunnar til þess að drepa alla Eskfirðinga hvar sem við sjáum þá, því Elías kemur jú þaðan, ekki satt. Það hlýtur hver heilvita maður að sjá að þetta er eina leiðin.

4 Comments:

Blogger Refsarinn said...

Er að leggja af stað til Eskifjarðar með jeppann halðinn af sperngiefni. Takk fyrir allt og hlakka til að hitta jómfrúrnar.

föstudagur, 03 febrúar, 2006  
Blogger BbulgroZ said...

Brennum eskfirska fánann!!! og Elías garðyrkjumann með...það er það eins sem þessir andskotar skilja!!

sunnudagur, 05 febrúar, 2006  
Blogger Fjalar said...

Hættum að kaupa Eskfirskar vörur! Setjum þá á hausinn þessa andskota. Og skjótum Alla ríka.

mánudagur, 06 febrúar, 2006  
Blogger Refsarinn said...

Þú meinar Allah líka er það ekki?

mánudagur, 06 febrúar, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters