17 febrúar 2006

Hafið kæra þökk

Ég vil nota tækifærið og þakka örlaganornunum fyrir að velja þennan dag, sem daginn sem ég fæ vöðvabólgu í vinstri öxl og hef tekið á mig holningu krypplings. Daginn áður en Menn ársins halda í hljóðver til þess að kúldrast yfir hljóðfærum í annarlegum pósum (ekkert misjafnt - bara fílingur).

Þetta er frekar kaldhæðnislegt, sérstaklega í ljósi þess að ég hef beðið eftir því ansi lengi að þessi helgi rynni upp og hef eytt miklum tíma og orku í að koma þessu saman svo öllum henti. Þakka ykkur fyrir. Írónía ykkar er aðdáunarverð. (Gömlu jussur).

(Það er einstaklega friðandi að fara í hlutverk extróverts og kenna alltaf öðru um það sem aflaga fer. Sjálfsvorkunn upp að vissu marki er líka nauðsynleg).

Annars hlýtur þetta að ganga upp. Fór til apótekarans í morgun og byrgði mig upp af smyrlsum og töflum. Bryð Voltaren Rapid (er það ekki fyrir kanínur?) og og velti mér upp úr Orodis-kremi.

Svo er að bíta á jaxlinn.

Ég get þá alltént svarað eins og íþróttamaður þegar einhver heyrir músakkið og gerir athugasemdir: "Ég var bara meiddur"...

Í kvöld er árshátíð Sinfó. Fer. Verð stutt. Vakna snemma.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þú komst mér í gírinn í gær svo hér eru smá leiðréttingar:
Voltaren Rapid er fyrir austurríska knattspyrnumenn.
Músakkinu til afsökunar legg ég til að þú segir frekar:
"Ég átti við meiðsli að stríða", nú eða bara nota móður allra afsakana: "Útkastshornið var ekki rétt".

föstudagur, 17 febrúar, 2006  
Blogger BbulgroZ said...

Þetta með útkastshornið notaði hann Einar okkar Vilhjálmsson æði mikið eftir léleg spjótköst...

Afar leitt er það að heyra að ekki ganga plön ykkar, Manna ársins til upptöku, það eru einhver álög á þessu öllu saman hm...fyrst er þessu eitt út af tölvunni og svo koma örlaga nornirnar og stöðva ykkur áður en allt fer í gang...þú ættir næst að tala við Hermund Rósenkrans, og þið í sameiningu ættu að ákvarða tímann á upptökum, út frá talnaspekinni, og þá þarf að vita hver verður upptöku maður, vita hvenær hann er fæddur ofl. til að vita hvað tölu hann hefur, allt skiptit þetta jú máli.

föstudagur, 17 febrúar, 2006  
Blogger Refsarinn said...

Meiðsl eru ekki tekin með á þessum síðum nema mynd fylgi.

mánudagur, 20 febrúar, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters