26 apríl 2006

Það var...


...eins gott að sitja ekki við hliðina á Herði í gærkvöldi. Sérstaklega þegar spaghettibullan henti sér með tilþrifum á völlinn á 89. mínútu og dómarinn rússneski féll í gildruna og blés til vítis. Ömurlegt, skammarlegt og honum til minnkunar.

Furðulegt er ástarævintýri Henry og Gerrard sem keppast við að mæra hvorn annan þessa dagana. Hafa þessir menn ekkert séð mig spila?

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Defibrillatorinn kom í góðar þarfir í gær ekki síst þegar spagettíið dró rússneska flautuleikarann á tálar.
Lélegur leikur en dásamleg niðurstaða.

miðvikudagur, 26 apríl, 2006  
Blogger Fjalar said...

Og það undarlegasta var að franski "vara"maðurinnn var lélegur, eiginlega bara mjög lélegur í öllu sem hann gerði. hef aldrei séð það áður en það skipti svo sem ekki máli þar sme ógnunin af honum hélt varnarlínunni alveg í skefjum.
Þegar þetta er skrifað er ljóst að súperleikurinn verður Barca-Arsenal. Það verður erfitt að útskýra fyrir litlu börnunum á heimilinu hverjum skal halda með núna. þau verða laglega rugluð í ríminu.

miðvikudagur, 26 apríl, 2006  
Blogger BbulgroZ said...

Sá ekki leikinn, en heyrði að spænskir hefðu verið með töluvert af leikrænum tilþrifum. Höldum með Arsenal, ekki spurning, gæti líka orðið skemmtilegur leikur, Henrý v.s. Ronaldiniho.

fimmtudagur, 27 apríl, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters