Mr. Murrey

Rifjaði það upp um daginn þegar ég sá Ghostbusters á Skjá einum hvað mér þótti Bill Murrey skemmtilegur einu sinni. Maður gat líka nokkurn veginn gengið að honum vísum í rullu fyndna töffarans sem átti alltaf síðasta orðið. Sem bankaræningi í myndinni Quick Change var hann líka frábær. Ground-hog day verð ég að fara að sjá aftur. Zchnilld.
Ég verð að viðurkenna það ég hef ekki fylgt með í aðdáun manna á þessari "seinni-bylgju" hans á hvíta tjaldinu. Til að mynda engdist ég af leiðindum undir Lost in translation, held reyndar að Sofia Coppola sé alls ekki góður kvikmyndagerðarmaður (horfið bara á Virgin Suicides ef þið eruð í vafa).
Í gær þegar ég var að sofna yfir Broken Flowers, sem stýrðist reyndar af þreytu frekar en leiðindum, þá varð mér það ljóst að Bill Murrey hentar alls ekki að vera kjurr og þögull í meira en 10 sekúndur í senn. Það virkar ekki fyrir mig. Langar bara að sjá hann leika ofvirkan egóista, einu sinni enn... bara smá!
Ég ætla samt að gefa Broken Flowers annan séns eitthvert kvöldið þegar ég á meira af bensíni eftir.

6 Comments:
Verð að vera þér sammála þarna minn kæri. Ég ætla þó að nýta tíma minn betur og gefa honum ekki annann sjens fyrr en hann tekur egóistann upp að nýju.
Ég sá Broken Flowers í bió-i og hún er helv..spes en ágæt, ekki mynd sem mig langar að sjá aftur, Bill soltið að mikið að þegja lengur en 10 sek ofl..
Algjörlega svo mikið sammála. Gafst upp á Lost in translation það bara gerðist akkúrat ekkert þann tíma sem ég horfði.
"Annar séns" er greinilega málið þegar kemur að seinnibylgju Murreys. Lost in Trans gerði ekkert nema pirra mig þegar ég sá hana fyrst. Horfði svo aftur og það var allt annað.
Og er meistarastykkið Groundhog day ekki einmitt um mann sem fær annan séns?
Tilviljun?
Og svo er annað: Fjöldi mynda sem eru svo góðar að þær lifa það af að Andy McDowell leiki aðalkvenhlutverkið:
Groundhog
Two Weddings
Green Card
Tilviljun?
Það er rétt, ÞRÁTT FYRIR hana Andy hafa þessar myndir allar sitthvað til síns ágætis.
Horfði reyndar á hluta af Lost in Translation aftur... en hún gerði ekkert frekar fyrir mig þá. Bill Murrey er brúndoppóttur af elli með gráa fiðringinn og graðnaglablik í augum sem verður ekkert bærilegra í annað sinn.
Samt horfði ég helvítí lengi... Merkilegt?
Sofnuðuð þið á bíó eða hvað? Það vory Four weddings og ein jarðarför. Verstur andskotinn að það var ekki Andy MacDowell sjálf sem drapst, og þá meina ég ekki persónur heldur leikendur.
Skrifa ummæli
<< Home