22 mars 2006

I love riots in the springtime

Við hjónin erum sem sagt á leiðinni í "bláberjafrí" til Parísarborgar hvar við munum dvelja í 5 daga við bóhemska ofgnótt vestrænnar úrkynjunar. (Þessi orðsmíð "bláberjafrí" er komin frá Kolbrúnu systur minni að ég held. Merkir að fara í burtu frá fjölskyldunni í stuttan tíma og hlaða batteríin. Ég hef í það minnsta alltaf skilið það þannig)

Erpur hefur af höfðingsskap sínum boðið oss gistingu. Við þekkjumst boðið í tvær nætur en höldum síðan á Hótel í 5. hverfi og tökum túristapakkann., Turninn, Boginn, Safnið, Krikjan, Höllin og þar fram eftir götum.

Við stólum á að Erpur muni verða leiðsögumaður og leyfa okkur að sjá eins og eina, tvær götuóeirðir. Mér skilst að námsmönnum í Frakklandi þyki fátt skemmtilegra en að fara um stræti og torg í hópum, æpandi og kallandi. Mest finnst þeim þó gaman að hlaða götuvígi segja mér fróðir menn, enda ku það vera metið til 16 eininga við nokkra háskóla þarlendis ef hægt er að sýna fram á mikla reynslu af mótmælum og skýlausa óeirðagreind.

Vona að vorið verði búið að rifa augun og við getum í það minnsta drukkið einn eða tvo kaffibolla við Signubakka.

2 Comments:

Blogger BbulgroZ said...

Heitsmaður, góða ferð og stórt knús á Erpinn frá mér : )

miðvikudagur, 22 mars, 2006  
Blogger Refsarinn said...

Jamm knús á Erp.

miðvikudagur, 22 mars, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters