26 maí 2006

Ha, eru kosningar?


Daginn fyrir sveitarsjórnarkosningar eru aðalmálin í hádegisfréttum RÚV um norsk-íslenska vorgots-síld, innanríkismál í Palestínu, 3 ofbeldismenn á Akureyri sem meðal annars beita garðklippum í starfi sínu, stjórn Írans og samskipti hennar við umheiminn, talsmann neytenda sem vill að olíugjald sé stöðugt, sumarhúsaeigendur við Úlfljótsvatn, sýningu Diters Roth og svo að sjálfsögðu veðrið.

Er þetta til marks spennandi kosningabaráttu að jafnvel fréttamennirnir telja sig ekki hafa neina "aðalfrétt" sem viðkemur sveitarstjórnarkosningunum,... sem eru Á MORGUN?

Í gær heimsótti ég Borgarfjörð og ræddi við nýgræðing í pólítíkinni sem er í stórhættu að enda í bæjarstjórn. Viðkomandi sagði mér af reynslu sinni af vinnustaðafundum sem hann hafi borið talsverðan kvíðboga fyrir. Taldi fullvíst að þar yrðu stóru málin reifuð og því væri eins gott að hafa unnið heimavinnuna sína vel, þekkja innviði bæjarins út og inn og glöggva sig á öllu því helsta, sem hann og gerði. Þegar til kom og orðið togaðist loksins upp úr viðstöddum snérist það eingöngu um smámál og tittlingaskít. "Hvað með tjaldstæðið?" "Á ekkert að mála göturnar beinna"... og þar fram eftir götum!

Nú er Gunnar Birgisson búinn að gefa Garðbæingum nokkrar milljónir í formi vatns-þróunaraðstoðar, kaupa hesthús af konunni sinni fyrir metfé, skaffa vinum sínum og meintu frægu fólki lóðir að ógleymdu snilldarbragðinu að senda okkur fasteigna-eigendum ávísun korteri fyrir kosningar. Kópavogsbúar kunna vel að meta ef marka má kannanir!

Kæru vinir það er aðeins eitt sem þið getið gert til þess að gleyma þessu öllu saman. Komið og hlustað á mig spila á nýja rafmagnsgítarinn minn í kvöld á Hressó milli 22 - o1. Kannski stilli ég magnarann á 11 ef þið klappið nógu mikið.

2 Comments:

Blogger BbulgroZ said...

Kosningavaka á Hressó!! kemst ekki að þessu sinni, kem næst.

sunnudagur, 28 maí, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Og hvernig fóru svo þessar kosningar? Komst Silvía Nótt áfram?

mánudagur, 29 maí, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters