Gott að búa í Kópavogi
Stórsniðugt að borga hærri fasteignagjöld en manni ber. Enn sniðugra að fá endurgreiðlsu þeirra í formi ávísunar frá Gunnari I. Birgissyni, með persónulegu bréfi frá honum sjálfum, 4 dögum fyrir kosningar.
Þvílík tilviljun.
Af stefnuskrá flokkanna held ég mest upp loforð Samfylkingarinnar í Kópavogi; að efnt verði til árlegrar alþjóðlegrar ljóðahátíðar. Ef þetta hefur ekki brunnið á kjósendum, hvað þá? Hvað svo með stefnu stjálfstæðismanna að það verði ódýrast fyrir barnafjölskyldur að búa í Kópavogi.
Hmmmm...
Annars finnst mér vaðallinn farinn að verða full mikill. Allir ætla sér að bæta aðstöðu, hag og aðbúnað eldri borgara. Ólafur Þór, efsti maður á lista VG, kom að mér fannst býsna vel út á svokölluðum Borgarafundi NFS í gær þegar hann hjó á Gusts-umræðu hinna þriggja frambjóðendanna og sagði eitthvað á þá leið að hann hefði meiri áhuga á að hlúa að fólki en hestum og þá helst eldri borgurum. Maðurinn er öldrunarlæknir og skildi aðra eftir í reyk þegar kom að umræðum um þetta málefni). Gunnar talaði eitthvað en ég skildi ekki alveg allt sem hann sagði. Svipað var uppi á teningnum þegar frambjóðandi Framsóknar tók til máls.
Allir vilja gera allt. En það er samkvæmt mínu viti - ekki hægt. Spyr mig stundum hvort stefnuskrár flokkanna ættu frekar að taka fram hvað hver og einn leggur EKKI áherslu á.
Fyrir skemmstu birtist um það frétt að Akureyringar (held alveg örugglega að það hafi verið þar) hefðu lagt niður starf menningarfulltrúa bæjarins til þess að mæta kostnaði við nýtt íþróttahús. Margir krossuðu sig. Ég spyr: Er þetta ekki gott fordæmi að gefa fólki hreinan valkost og segja: Við viljum beita okkur fyrir því að "þetta" verði gert og þar af leiðandi ekki "þetta". Sveitarstjórnarpólítík yrði þá nokkurs konar Hvað-ætlarðu-að-gera-við-peninginn-sem-frúin-í-Hamborg-gaf-þér á budgeti. Þú færð ekki meiri peninga en þetta. Ef þú gerir A,B,C og D, þá getur þú ekki líka gert E,F og G. Einhverju verðurðu að sleppa.
Svo er það tískufrasinn...
Hver á eftir öðrum galar um gjaldfrjálsa leikskóla! Fyrst að Kópavogsbær þarf ekki á þeim tekjum að halda væri ekki ráð að reyna að manna þessar stofnanir fyrst og greiða hæfu, vel menntuðu fólki, góð laun til þess að passa börnin okkar?
Þetta er af sama meiði og umræðan um hátæknisjúkrahús. Ef engin fæst til starfans nema danskir hjúkrunarfræðingar (burtséð frá því hvort þeir fái hærri laun eður ei sem er umræða út af fyrir sig), hvað þurfum við þá?
Jú, meiri steinsteypu og betri vélar sem segja blíng.
Skrifað í skýin fagnar 1 árs afmæli þann 27. maí. Af því tilefni kaupi ég mér stóran jarðberjasjeik og fer í uppáhalds-sokkana mína á laugadaginn.
Ég þakka greinargóð svör við spruningu minni um gróðurhúsaáhrifin.
Lifið heil.

5 Comments:
Hey!!!! Hvar er ávísunin mín!!!?
Ja ef sá sem ritaði þennan pistil er ekki framboðsefni miðað við þennan málfuttning,þá veit ég ekki hvað, Góður pistill um sveitarstjórnarpólitíkina, sem að ég hef einhvernvegin ekki náð að hafa áhuga á eða haft tíma eða nennu til að fylgjast með. Borgarstjórinn, hún Bryndís Halla eða hvað hún nú heitir ;) býr hérna í næsta húsi við mig svo við erum helv seif hér...
TIl HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ DRENGURINN MINN!
Já, það voru víst einungis þeir sem stóðu í skilum sem fengu endurgreitt.
ehemm...
Hóst...
Mikið er ég sammála þér kæri Smútn, þeetta er allt saman óskaplegur hrærigrautur og engin leið að átta sig á því hver kemur til með að standa sig best við að efna loforðin.
Frúin í Hamborg hugmyndin er framúrskarandi góð og mætti gjarnan taka upp.
Skrifa ummæli
<< Home