31 maí 2006

Himnarnir munu hrynja yfir ykkur! Sanniði-til...


Konan mín segir að ég sé svartsýnismaður.
Það getur ekki verið...

Ég er fæddur árið 1969, sama ár og Bandaríkjamenn komu manni á tunglið, Midnight Cowboy fékk óskarsverðlaun og mörg hundruð þúsund mans komu saman á útitónleikum skammt frá Woodstock og hippuðust í leðjunni undir dunandi músík svo fátt eitt sé nefnt.

Langt fram á unglingsár mín var heiminum snyrtilega skipt í tvær fylkingar. Önnur var góð hin var slæm. Mér var sagt að leiðtogar stærstu hernaðarríkja heimsins byggju yfir svo kraftmiklum gereyðingarvopnum að hægt væri að granda heiminum 25 sinnum. Skildi þo aldrei hvernig væri hægt að sprengja heiminn oftar en einu sinni, hvað um það. Talan var uppfærð reglulega á forsíðum Moggans eða Þjóðviljans eins og til að árétta það að við værum jú öll feig og í fjarska heyrðist ómurinn af Geislavirkum Utangarðsmönnum: “Þið munuð öll, þið munuð öll, þið munuð öll, DEYJA. Tónleikar voru haldnir undir yfirskriftinni: Við krefjumst framtíðar og í Bíóhöllinni gekk kvikmyndin The day after fyrir fullu húsi.

En við höfðum það af.

Myndirnar af uppreisninni í Rúmeníu og broti múrsins í Þýskalandi voru fyrir mér ný byrjun í mannkynssögunni og ég man að ég skynjaði það sterkt. Þetta eru líklega áhrifamestu ímyndir síðustu aldar fyrir mína kynslóð. Það er önnur saga.

Síðan þá hefur mér ítrekað verið sagt að ég ætti nú ekki að fagna of mikið því að handan hornsins biðu allra handa meinsendir sem mundu sannarlega gera útaf við mannkynið. Þegar kaldastríðið og Bomban hættu að hræða var okkur sagt að við yrðum dauð úr AIDS innan skamms.

En við höfðum það af.

Síðan þá hefur verið bryddað upp á ebóla-veiru, berklum, sars (eða hvað það nú hét), hryðjuverkum og eflaust ýmsu fleiru en nú síðast fuglaflensunni.

En við tórum enn.

Finnst einhverjum skrýtið að fólk á mínu reki taki heimsendaspár ekki alvarlegar en raun ber vitni?

5 Comments:

Blogger BbulgroZ said...

Þarna talar reynslubolti mikill sem hefur séð næstum allt og ekkert kemur honum úr jafnvægi. En ég tek undir þessi orð, ég er einmitt að vinna með unglingi sem talar reglulega um heimsendi og að mannkynið sé komið svo langt frá uppruna sínum og við föttum ekki hvað sé mannslegt ble ble bleee, ég leifi þessu bara yfir mig að ganga og brosi út í annað yfir svona þankagangi.

miðvikudagur, 31 maí, 2006  
Blogger Pooran said...

Yfsilon-Perrinn strikes again! Hann bæði leifir og leyfir. Mundu svo að sparka fast í mig þegar ég kem til Íslands Arnar, þetta gæti verið þinn síðasti séns!

miðvikudagur, 31 maí, 2006  
Blogger Refsarinn said...

Talandi um það Erpur. Þú hangir bara úti í París meðan malbikið kólnar!

miðvikudagur, 31 maí, 2006  
Blogger BbulgroZ said...

Ussusususss, ég fer að leggja niður síðu mína og önnur skrif hér, ég get ekki meir...fer á stafsetningar námskeið í haust og kem svo eftir áramót og hef þetta svona c.a. rétt eftir það...mín sök, mín sök, mína sök, segi ég nú bara, guðs blessun.

fimmtudagur, 01 júní, 2006  
Blogger Smútn said...

Stríddu honum bara á móti. Hann kann til dæmis ekki að segja "settist niður" og segir gjarnan "sast niður".

Svo bullaði hann bara einhverja vitleysu þega við vorum saman á veitingahúsum í Frakklandi!

En hvar er myndaserían sem þú lofaðir mér?

fimmtudagur, 01 júní, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters