Lógó-gredda
Það vita allir sem unnið hafa á auglýsingastofu eða sýslað í markaðsmálum að lógó fyrirtækja eru oftar en ekki einhverskonar grafísk fjöregg sem umgangast þarf varlega. Þau eru jú nafn og nánast andlit fyrirtækisins. Eðlilegt þykir að þau endurspegli, eða í það minnsta, séu í samræmi við þá starfsemi sem fyrirtækið hrærist í.
Stundum hefur mér heyrst oddvitar ýmissa fyrirtækja sem ég hef unnið fyrir eða unnið með hafa ofurtrú á birtingu þessara merkja og gera úr þeim hálfgerða pissukeppni. "Verður lógóið okkar ekki með?" "Verður lógóið mitt ekki stærra?
Nú hefur einhver snillingur talið nokkrum lógóvarðhundum trú um það að það sé svo-og-svo mikils virði að fá merkið sitt birt í beinum útsendingum frá HM-leikjum. Þetta vil ég kalla mestu lógó-greddu sem sést hefur lengi. Í miðjum leik birtist merki einhvers fyrirtækis á skjánum. Mér þætti gaman að heyra hvað menn borga fyrir það að fara í taugarnar á knattspyrnuáhugafólki. Hvert er birtingarverð á einni irriterandi truflun í dag?
Þarf ekki að fara að kenna þessu fólki að það er til staður og stund fyrir flesta hluti.
Á skemmtilegri nótum...
til hamingju með daginn ástkær systir mín.

2 Comments:
Já þetta er með ólíkindum.
Já, þar sem ég hefi verið svo mikið erlendis : ) hef ég einungis séð einn leik á sjónvarpsstöðinni Sýn og ég rak augun mín í þetta og skil gremju þína minn kæri.
Skrifa ummæli
<< Home