23 ágúst 2006

Eins gott maður...

Nú hefur heiðvirða barnasjónvarpsstöðin Boomerang séð sig tilneydda að klippa hina klassísku teiknimyndir af Tomma og Jenna sundur og saman svo þær hafi ekki slæm áhrif á ungviðið. Þeir félagar fá áfram leyfi til ofbeldisverka eins og þeim er einum lagið. Sú breyting verður þó á að hér eftir getur Tommi ekki leyft sér þann munað að tendra í vindlingi, því eins og allir vita þá eru reykingar stórhættulegar...

Einmitt það.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Kemur þetta einhverjum á óvart? Ekki mér.

laugardagur, 26 ágúst, 2006  
Blogger Bjarney Halldórsdóttir said...

Það er svo margt kjánalegt í heiminum. Hef horft á Friends þætti í sjónvarpinu mínu þar sem búið er að klippa út atriði til að vernda ungviðið - geri ég ráð fyrir. Og Malcom þætti þar sem búið er að eyða út einu og einu orði þegar persónurnar tjá sig. Er bara þögn í staðin!

föstudagur, 08 september, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters