Perlur fyrir svín
Að kasta perlum fyrir svín hefur aldrei þótt skynsamlegt. Svín gera engan greinarmun á perlum, smásteinum, hvað þá sínum eigin saur. Samt hamast menn við að segja að svín séu einmitt svo þrifaleg... það var nefnilega það. Má bjóða þér að kúra í stíunni hjá þeim? Ímyndaðu þér eitt augnablik blautt slefandi trýnið í hálskotið, skítinn fastan í hárinu á þér í sama mund og ylurinn frá pissubununni skríður niður eftir mjóbakinu á þér. Þætti þér það vera rétti tíminn til þess að standa upp sigri hrósandi og segja. "Þetta eru svoooooo þrifalegar skepnur..".Þetta var útúrdúr. Og þó?
Eftir mikla ágengni gesta kaffihússins Aroma í Hafnarfirði á laugardag, hvar hljómsveitin Menn ársins lék við hvurn sinn fingur en mannfólk ýmist annað sýndi af sér svínslega hegðun vakna spurningar. Hér er nauðsynlegt að ítreka að öllu jöfnu er þar að finna geðugasta fólk. En ekki að þessu sinni. Einhver skildi stíuna eftir opna á laugardagskvöld og hleypti út göltum og gyltum í öllum stærðarflokkum.
Þegar gestir höfðu skemmt trommurnar með því að nýta líkamsþyngd sína í frjálsu falli, sullað yfir rafmagnspíanó, og nærliggjandi rafmagnstæki, lyft stólum yfir höfuð, líkast til sjálfum sér og öðrum til skemmtunar, var ekki laust við að manni liði líkt og hefði maður lagst í stíuna í Húsdýragarðinum. Ósjálfrátt byrjar maður að ýta og spyrna frá sér um leið og maður er að "skemmta" gestunum og þá verður til undarleg þversögn.
Tóti lýsir þessu frá mannfræðisjónarhóli og tekst vel upp. Finnst þetta ein birtingarmynd margra á "bullyism" sem einkennir æði margt í fari þjóðrinnarar hans mati. Reynslusaga hans af ítrekuðum tilraunum fjölskyldunnar við að koma sér fyrir hér á landi og botnlausri tregðu opinberra, sem óopinberra, aðila við að veita þeim lágmarksmannréttindi, er holl lesning hverjum þeim sem gengur með þá flugu í kollinum að við bjóðum erlent fólk velkomið. Því fer fjarri.
Það er athyglisverður samanburður að hafa á sínum tíma gengið inn í danskt trygginga- og heilbrigðiskerfi nánast við komu til Danmerkur en þurft að sætta sig við hálft ár fyrir utan slíkt kerfi þegar flutt var aftur "heim". Þjóð sem refsar sínu eigin fólki fyrir að flytja úr landi getur tæpast verið hliðholl útlendingum sem hingað vilja koma.

5 Comments:
Hey!! Ertu nokkuð að tala um mig?
Erum að skoða myndskeið úr eftirlitsmyndavélum. Þú heyrir frá okkur!
Ja hérna hér...ég sat nú sem betur fer sem fastast á stólnum mínum þetta kvöldið, náði mér reynda í nokkrar ölkrúsir og þurfti að standa á fætur til þess, en þetta fór framhjá mér þessi dólgslæti...en afar illa Þykir mér komið fram við hann Þórarinn og hans fólk.
Ja-há ... þakka stuðningsleg orð ... þessa stund líður mér ekki eins og ég sé einn að synda á móti straumnum ... takk!
...ég er ennþá brjálaður!!!
Skrifa ummæli
<< Home