Nútíminn endurheimtur
Upplifði ánægjulega endurfundi um síðustu helgi. Nokkrar kynslóðir hljómsveita, (þó Band Nútímans hafi verið þeirra helst) komu saman í bílskúr hjá honum Pétri í Mosfellsbænum og rifjuðu upp gamla músík. Ægilega gaman!Veit ekki hvort var skrýtnara, að sjá alla þessa pilta aftur og spila með þeim, eða þegar við gerðum hlé og fórum allir út í sjoppu. Merkilegt hvað kauðsleiki þeirra aðstæðna varð allur meiri en í æfingaplássinu. Eins og einhver hafi fryst eitt augnablik fyrir 20 árum síðan og fleygt því inn í nútímann og fylgst spenntur með því þiðna á sjoppugólfinu.
En vonandi að við höldum hópinn áfram í einhverri mynd. Og já, þetta er sko gamli blái Fenderinn í höndunum á Ævari!

2 Comments:
Orðlaus....
Úff maður, það væri gaman að sjá ykkur spila í bílageymslunni í Kópavoginum (Hamraborginni, fyrir aftan Olísstöðina), aftur.
Skrifa ummæli
<< Home