11 október 2006

Fjörugrjót, sekkjapípur og stálnáglar

Nei, fyrirsögnin vísar ekki til afbrigðilegs kynlífs, heldur eru þetta allt saman verkfæri sem þarf að nota þegar leika á EDDU eftir Jón okkar Leifs. Verkið er á dagskrá melabandsins á laugardaginn og það merkilega við þetta krakkar mínir er að sjálfsögðu sú staðreynd að það hefur aldrei áður verið flutt í heild sinni.

Komið ef þið þorið!

Litli bró er sveittur við upptökur á fyrsta tónmyndbandi manna ársins í útjaðri Parísaborgar (já flott er það). Tökur fara fram í völudarhúsi sem er í eigu einhvers greifa sem ég þekki engin frekari deili á. Tökur klárast í dag og ganga að mér skilst af nýfengnu ess-emm-essi býsna vel. Hlakka mikið til þess að sjá útkomuna.

Ókey, ég ýkti aðeins. Jón skrifaði aldrei neitt fyrir stálnagla að mér vitandi en hitt stendur.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Mmmmmmm..... sekkjapípur!

fimmtudagur, 12 október, 2006  
Blogger Varríus said...

samkvæmt minni reynslu eru sekkjapípur hljóðlátustu verkfæri sem um getur. Vel má samt vera að það heyrist enn minna í fjörugrjóti.

Þegar kemur að slagverksórum hr. Leifs þá var hann kannski meiri konseptmaður en beinlínis tónskáld.

Finnst samt fúlt að komast ekki.

fimmtudagur, 12 október, 2006  
Blogger Varríus said...

Öppdeit:

Af bloggi Árna Heimis Ingólfssonar:

"... og SÍ fær ekki nema smá mínus fyrir að sleppa ocarinunni og sekkjapípunni í þetta sinn...."

Leturbreyting Varríusar

fimmtudagur, 12 október, 2006  
Blogger Varríus said...

... og nú er hann búinn að leiðrétta það. Sekkjapípur og allt.

Góða skemmtun (ef það er orðið sem ég leita að)

fimmtudagur, 12 október, 2006  
Blogger BbulgroZ said...

Já hlakka mikið til að sjá og heyra afrakstur videovinnunnar...

fimmtudagur, 12 október, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters