Ísland sýnir gamla takta
Allt á kafi í snó!Á sunnudagsmorgnum sem þessum, þegar maður á allt eins von á að þurfa að stugga við mammútum á bílastæðinu og fer ósjálfrátt að persónugera snjóskófluna, þá er eins gott að eiga hlýjar minningar.
Ég rakst á þessa ágætu mynd sem ég ætlaði alltaf að deila með ykkur. Þetta er sem sagt, útsýnið af Golf Hotel í Bled í Slóvenínu. En þar áttum við hjónin náðuga daga í lok október. Gleymdi ég nokkuð að minnast á það að hitastigið var nálægt 20 gráðum.
Með þessu vonast ég líka til þess að komast ofar í samræmdum vefmælingum Arnars.
Í gær hló ég á sama tíma og Spaugsofan var í sjónvarpinu. Samt var ég að horfa á sjónvarpið. Þetta er alveg ný reynsla.

2 Comments:
Þessi hlátur roka gæti verið fyrstu merki elli minn kæri. Annar má kannski ætla að þegar einhver reynir að vera fyndinn í 10 ár að það takist fyrir hendingu einu sinni?
Ég verð bara að óska þér til hamingju, með að þokast eiylítið upp vefmælingalistann...en eitt blogg telur lítið þar sem að menn og konur hafa tekið þessa "bloggmælingakeppni" svo alvarlega að þeir sem vilja komast ofar á listann verða að vera tölvert duglegri : )
Skrifa ummæli
<< Home