Bókarýni
Hef átt erfitt með að slíta mig frá Flugdrekahlauparanum hans Hosseini. Stórfín saga, áhrifarík og vel sögð. Bókmenntadeild Smútniffs gefur henni 7 rollur af 10 mögulegum og takið eftir, ég er ekki búinn... Trúi því bara ekki að hann klúðri þessu á síðustu metrunum. Svo þið sjáið að ég tek nokkurn séns með þessari rollugjöf.Sagan af Pí hélt mér einnig föngnum. Lítið hægt að segja um þá sögu sem ekki spillir fyrir upplifun þess sem á eftir að lesa hana.
6 rollur af 10. Fékk mig ekki til þess að efast meira um trúleysi mitt en ég þó geri (þrátt fyrir loforðið á kápunni).
Ég reyndi hvað ég gat að lesa Ellefu mínútur eftir Paulo Coelho en get með engu móti fengið mig til þess að halda áfram. Hef þurft að endurskoða samband mitt við Alkemistann eftir að Erla fleygði henni frá sér í miðri lesningu og sagði að sér þætti þetta vægast sagt hundleiðinleg saga. Ég fór í gegnum hana í einhverri nýaldarjákvæðni. Kannski er ég svona áhrifagjarn að ég trúði ekki öðru en mér ætti að þykja þetta merkileg bók. En frúin kláraði samt og gaf sinn endanlega dóm: "Maðurinn er bókstaflega húmorslaus..."
Ekki gott.

9 Comments:
Ja-há! Veronika ákveður að deyja er betri en 11 mínútur en ekki betri en Alkemistinn. Eða kannski þyrfti ég líka að endurlesa Alkemistann. Mér fannst hann góður þó svo hann breytti ekki lífi mínu ... eins og lofað var á kápunni. Annars er ég 'mini'-aðdáandi Paulo Coello og þá er oft lítið að marka hvað manni finnst um listaverkin ... vantar ákveðið hlutleysi ...
Ég ætla að vitna í yngribróðir minn hér: BRÉFHAUS!!! : )
Þá vitna ég bara í Stebba Geit: "Kálhaus".
"Geithafur... Stefán Geithafur", segir hann jafnan við fyrstu kynni, hef ekki heyrt neitt af þessum fúkyrðum hans annars, alltaf voða kammó við mig : )
Athugaðu að hann sagði þetta líka eftir að þú varst farinn...
Þetta er áfall fyrir mig, sem kynveru.
Tilhugsunin um of mikla nálægð hugtakanna "Stebbi Geit" og "kynvera" virkar á miðtaugakerfið svolítið eins og að stjúka einangrunarplasti eftir gleri... ef þú skilur.
Sniðugt hvernig þessi bokmenntaumræða fór yfir í það að tala um mig sem kynveru og Stefán nokkurn Geit : )
En ég skil samlíkingu þína minn kæri frændi.
Góða ferð út : )
Hei, ég er að fara leika geithafur í Þjóðleikhúsinu!! Váá, tilviljun men! Eða réttara sagt Satýr, hálfur maður og hálfur hafur Allir á jólaleikrit Þjóðleikhússins 2006!!
Skrifa ummæli
<< Home