Þetta er aðvörun. Kannski meiri hvatning þó...
Kæru vinir.
Ég tel það algerlega bráðnauðsynlegt fyrir ykkur öll, sem álítið ykkur ganga með snefil af mennsku í huganum (eða kroppnum... eftir því hversu miklir materíalistar þið eruð) að þið takið laugardaginn 11. nóvember næstkomandi frá. Hann eigið þið nýta til þess að horfa á mesta snilling sem heimurinn hefur alið frá því að maðurinn fór að ganga uppréttur og jafnvel aðeins fyrr. Sá heitir Charles Spencer Chaplin og gerði all-nokkrar kvikmyndir um dagana.
Tvær kvikmynda hans verða til sýninga þann daginn, The Kid og Idle class. Undir öllu saman hljómar svo Melabandið af alkunnum yndisleik og þokka.
Vei þeim sem af missir.

2 Comments:
Tak þú þrjá miða frá á besta stað, ég greiði þetta í að skjálfsögðu í 20 kílógramma mjölpokum.
Ég og stelpurnar mínar höfum tvö ár í röð farið á kvimyndatónleika með sinfóníunni þar sem Chaplin fer á kostum ásamt fleirum eins og Harold Lloyd. Ætla mér ekki að missa af þessum heldur.
Þetta er hin mesta skemmtan og fær okkar ágætustu meðmæli.
Skrifa ummæli
<< Home