16 nóvember 2006

Bassaljúfur kveður

Þórarinn vinur okkar Freysson, sem hefur plokkað bassa með Mönnum frá því guðmávitahvenær, flytur búferlum í byrjun desember. Og við erum ekki að tala um skreppitúr á milli póstnúmera - ó nei. Hann heldur til Englands með þesslenska frú sína og tvö börn.

Það er fúlt að sjá á eftir svo góðum dreng, ljúflingi, bassavirtúós og síðast en ekki síst öldungis nöskum sjómanni sem fór ávallt sinna ferða með gamla laginu, rýndi í stjörnur og kompása, ekkert GPS-bull. Bara lagt í hann.

En athugið að Þórarinn hefur ekki sungið sitt síðasta með Mönnum Ársins. Hann verður í liði okkar sem heimsækir Hafnfirðinga á morgun, föstudaginn 17. nóv, á... , einmitt - þið áttuð kollgátuna: Café Aroma. Fjölmennið nú og kveðjið pilt.
Annars er útlitið bjart með bassastöðuna í augnablikinu. Segi betur frá því síðar.

Sonur minn sagði við mig einn kaldan, dimman morgun fyrir skemmstu, þegar við bjuggumst til farar í skóla og vinnu, og vísaði þar til fyrsta skólatíma dagsins:
"Pabbi þetta er svo óhentugur tími,... af hverju er ekki hægt að hafa þetta klukkan 10....

Ef útlit hans tekur af allan vafa um faðernið, þá taka þessi orð af allan vafa um móðernið (ekki að það hafi verið neinn vafi, ég var á staðnum... (segir maður móðerni? Já, ég ætla að hafa það))

Lifið heil.

3 Comments:

Blogger BbulgroZ said...

Bassaljúf kveðjum við með trega, veit samt ekki hvort ég nái að kveðja hann "læf" á morgun fös : ( Vona að Mennirnir nái fyrri hæðum án hans.

En hef komist að því að við feðgarnir á Rauðalæknum erum í meginatriðum sammála syni ykkar, þetta er alls ekki hentugur tími.

föstudagur, 17 nóvember, 2006  
Blogger Tóti Freysson said...

Sammála ... þetta er engan veginn hentugur tími. Nú skulum við annar bara kveðjast með gleði en ekki tárum ... verði stuð!

föstudagur, 17 nóvember, 2006  
Blogger Refsarinn said...

Heiminum má skipta upp í A og B manneskjur. A vill fara snemma að sofa og vakna á ókrisilegum tímum en B menn eru seinna í sólarhringnum. Einhverntíman til forna tóku A menn völdin og löguðu alla okkar samfélagsgerð að sínum þörfum. Vonandi mun Eyþór verða okkar Nemo og breyta heiminum til betri vegar.

laugardagur, 18 nóvember, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters