Um áherslur kynja
Sagt var frá því fyrir skemmstu að nýr bæjarstjóri á Akureyri hyggðist meðal annars skerpa á kvenlegum áherslum í sinni valdatíð. Mér er spurn hvort að sá karlmaður sem tæki við embætti af konu og segðist vilja skerpa á karlmannlegum áherslum yrði ekki álitinn eitthvað verri?

4 Comments:
Jú en málið er að hann þarf þess ekki. Alveg eins og það þarf ekki að segja að jólatréð sem ég ætla að kaupa í ár er grænt. Hinsvegar ef ég keypti appelsínugult tré þá væri það frásögu færandi.
Sama gildir um þetta að mínu mati.
Ég verð að taka undir orð frænda míns og spyrja Fransínu systur mína að þessu: Normið er semsagt karlmenn, konur abnormal eller(t)???
Setti óvart t í endan á hinu danska spurnarfornafni "eller" og fannst það í meira lagi sniðugt, vonandi ykkur líka: )
Nei. En normið er þetta kalrlæga einfaldlega vegna þess að karlar hafa verið við stjórnvöl lengur og oftar.
Það er skiljanlegt að konur innleiði kvænlægt-eitthvað þegar þær taka við stjórn. Af því þær eru konur.
Og bla bla bla ég er komin út í eitthvað sem mér er ekki eðlislægt að útskýra og þess vegna ætla ég að hætta.
Það sem ég vil vita er í hverju þetta kvenlæga sem mönnum er tíðrætt um, er eiginlega falið.
Tel ábyggilega minni líkur á að nýr bæjarstjóri Akureyrar pissi út fyrir en sé ekki alveg hvaða aðrar breytingar það hefði í för með sér.
Skrifa ummæli
<< Home