Sunnudagsdekur
Í gær gengum við eftir strandlengjunni við Garðskagavita, leyfðum hundinum að hlaupa sig bláan í fjöruborðinu og nutum svo ljúfra veitinga hjá tengdó í bítlabænum. Síðar um kvöldið skruppum við hjónin í bíó. Sáum Pan´s Labyrinth, eins og hún er kynnt upp á engilsaxnesku, skil reyndar ekki hvers vegna hún má ekki bara heita El Laberinto del Fauno? Hvað sem öðru líður vorum við sammála um það að hún væri einfaldlega frábær. Mæli með þessari!Var orðinn óendanlega leiður á aðgerðarleysi mínu í bloggheimum. Held að nýtt met hafi fallið því síðasta færsla er frá því fyrir jól. Herra minn trúr.

3 Comments:
Gott að sjá þig hér aftur var orðinn ansi leiður. Kannski ég fari að setja inn eina færslu sjálfur.
Hey maður, velkominn aftur...þið hlunkarnir eru seinir til skrifa sem og í fótbolta hm... : )
Er búinn að heyra Augun opnast tvisvar á Rás2. Bíð spenntur eftir því að sjá myndbandið. Á hvaða stöð gæti maður átt von á því?
Skrifa ummæli
<< Home