18 desember 2006

Greinilega mánudagur

Margt og mikið hefur verið sagt og sett á blað til þess að lýsa eiginleikum mannsin og valinna einstaklinga innan stofnsins í gegnum tíðina. Mér þótti alltaf svolíð gaman af lýsingu gamals kunningja sem sagði um bróður sinn að hann væri "svona maður sem virðist alltaf vera að leita að stól..." Af orsökum sem takmarkaður skilningur minn á eigin heilabúi veitir ekki þá datt mér þetta í hug þegar ég las fréttina um konuna sem féll á kynjaprófi!

Stundum verð ég svo fyllilega utangátta þegar ég stend andspænis sumum vandamálum heimsins að ég finn fyrir brennandi þörf til þess að leita uppruna míns utan við gufuhvolfið.

Annað.

Var ekki óþarfi að vera birta okkur myndir af Guðmundi Jónssyni að sveifla veldissprotanum í fréttum Stöðvar 2 í gær. Manni fannst þetta einna helst gert til þess að magna upp andúð fólks gegn honum frekar en til þess að varpa einhverju ljósi á rannsókn málsins.

Fréttaskýringarþátturinn Kompás fjallaði um það í gær að umræddur Guðmundur hefði um langt skeið tælt sumar af þeim stúlkum sem leita sér aðstoðar í Byrginu til "kynlífsleikja" eins og það var orðað. Nokkur sönnunargögn sögðust þeir hafa undir höndum, eitt þeirra voru myndskilaboð sem hann á að hafa sent til stúlku sem um tíma leitað i sér aðstoðar í Byrginu.

Málið hlýtur að snúast um eittt grundvallaratriði. Ef meðferðaraðili nýtir sér samband sitt við klíenta sína og er farinn að stunda með þeim kynlíf, (mér er í sjálfu sér alveg sama hvort að leðursvipur, ólar eða eldhústæki komi við sögu) þá er hann ljóslega kominn út fyrir sitt verksvið og farinn að brjóta gegn siðferðishefðum og reglum allra viðurkenndra aðila sem slíka merðferð veita. Tek það fram að ég veit ekki hver menntun Guðmundar er.

Svo virðist sem hann sé andlegur leiðtogi Byrgisins og samkvæmt einhverjum þeirra 20 heimildarmanna sem Kompás staðhæfði að væru að baki ásökunum á hendur Guðmundi (enginn þeirra kom fram undir nafni) telji hann sig þess umkominn að veita fyrirgefninu frá almættinu sjálfu og búi yfir einhverjum mætti til þess að lækna fólk með sæði! Einmitt. (Manni líður undarlega að skrifa þetta).

Eflaust frjór jarðvegur til þess að drottna yfir fólki á svona stað, þar sem menn koma ónýtir á sál og stundum líkama til þess að leita sér hjálpar við vanda sínum og eru eflaust ekki mikil fyrirstaða fyrir orðháka með sanfæringarkraft.

Mér fannst engu að síður þessi myndbirting óþörf, klukkan hálf-sjö á sunnudagskvöldi. Ef grunur leikur á að maðurinn misnoti aðstöðu sína með fyrrgreindum hætti og ef satt reynist að hann hafi stolið peningum þá er það að sjálfsögðu glæpsamlegt og maðurinn verður væntanlega kærður.

Ósk mín er einföld: Færri standpínur í kvöldfréttatíma sjónvarpsstöðvanna.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Óskemmtilegt mál vissulega en mér fannst Kompás nú ekki ná að sanna þær staðhæfingar að Guðmundur hafi gerst brotlegur við lög né heldur að hann hafi brotið siðferðisreglur í starfi. BDSM er flestum eflaust ógeðfellt en það er ekki ólöglegt í sjálfu sér. Þær ásakanir sem eru komnar fram á hendur honum eru þrátt fyrir allt nafnlausar ásakanir , staðheæfingar án sannana. Í svona málum virðist því miður nóg að ásaka menn til að almenningur dæmi þá um leið.

mánudagur, 18 desember, 2006  
Blogger Haraldur said...

Þá dettur mér í hug:
Við getum ei tekið hann Guðmund í sátt, þótt syndum öllum hann hafni. Því fyrr má nú vera að fá sér drátt, í frelsarans Jesú nafni.
Diddi trommari.

fimmtudagur, 28 desember, 2006  
Blogger BbulgroZ said...

diddi tromma/hagyrðingur

fimmtudagur, 28 desember, 2006  
Blogger Refsarinn said...

Jamm og koma svo með færslu

fimmtudagur, 04 janúar, 2007  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters