Til hamingju með daginn
Til hamingju með fullveldisdaginn, alþjóðlega alnæmisdaginn og dag rauða nefsins. Fínt framtak hjá Unicef. Verð þó að mótmæla hástöfum þessari "one-size-fits-all" útgáfu af nefinu. Og þó. Kannski best að bíða fram á dag stóra nefsins með að koma því á framfæri?

4 Comments:
Tek undir þetta með stærðina a rauðunefjunum, verandi með XXXL nef að hætti Gúndýar : )
Hey, hvað ert þú að kvarta? Hvernig heldurðu að Fjalari líði með þetta?
Ok ok ok! Pick on me, auðvelt skotmark. - Enda dettur mér ekki í hug að setja þetta helvíti upp - það hefur reyndar meira með Unicef að gera heldur en nef og nefstærðir.
Þessi ofvirku samtök eru farin að gína yfir öllu góðgerðarfé landsins. Það nennir enginn að hjálpa íslenskum þroskaheftum börnum, langveikum eða krabbameinssjúki, ef hann getur komist í klúbb með Roger Moore, Jóhannesi í Bónus og Óla samskipakalli. Þetta er að þurrka upp allt annað góðgerðarstarf á landinu og það er álíka djörf ákvörðun að styðja Unicef eins og að halda upp á jólin.
Nefjólfur
...Eða 'Alþjóðlegi afmælisdagurinn' eins og fréttaþulur einn á RÚV sagði hér um árið...
Skrifa ummæli
<< Home