13 desember 2006

Æði og lifnipillur

Einu sinni fyrir langa löngu þegar alltaf var sólskin og heimurinn var nokkuð skýr í einfaldleik barnsins og dagurinn var aðeins leikur,... þá minnir mig að gilt hafi nokkur lögmál eða grunnreglur sem alltaf var hægt að grípa til í hita leiksins. Til að mynda ef maður sá fram á að fara halloka í gannislag sem var á mörkum þess að breytast í alvöru þá var hægt að taka æði! Sá sem tók æði gaf það iðulega til kynna með dýrslegu öskri og sleppti sér með tilviljanakenndum höggum og spörkum. Reglan var þá yfirleitt sú að aðrir lögðu niður vopnin, létu af slágsmálunum og sá sem tók æðið gat valið um að ganga burtu eða hefja stutta eftirför sem hann var þó skyldugur til þess að hætta mjög snemma samkvæmt hinum óskrifaða lagabókstaf. Það var aldrei breinlínis á hreinu hvort að sá sem tók æði hafi verið meiri eða minni maður á eftir.

Annað og sínu merkilegra lögmál var þó lögmálið um "Lifnipilluna." Pillan sú kom sér oft vel þegar fullyrt var ranglega að maður væri "dauður" eftir ósýnilegt byssuskot, jarðsprengjur eða aðrar svipaðar ógnir. Hið merkilega er þó að sjaldnast var amast við því að einhver tæki lifnipillu, jafnvel þó hann væri horfinn yfir móðunu miklu, höfuð jafnvel skilið frá búk, alltaf var pláss fyrir þessa lokahandahreyfingu þegar lifnipillunni var kastað í munninn.

Ég rifjaði þetta upp í ónefndu apóteki í gær þar sem við hjónin vorum þjónustuð af okkur nokkuð yngri stúlku og ég stóðst ekk mátið og bað um lifnipillu.
Og hvað haldið þið? Hún var ekki til!

6 Comments:

Blogger BbulgroZ said...

Þú ert nú meiri grallaraspóinn!! Hmfff...(hmff er sagt þannig að h-hljóðinu er blásið út um munn, en mfff-hljóðinu er blásið út um nef, erfitt er að búa til f-hljóð með nefinu en þetta er eiginlega bara blástur út um nef sem enginn stafur er til yfir)

miðvikudagur, 13 desember, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Er Viagra ekki lifnipilla?

miðvikudagur, 13 desember, 2006  
Blogger Refsarinn said...

Má ég koma með þér í búðir?

miðvikudagur, 13 desember, 2006  
Blogger Fjalar said...

Það mátti líka fylgja, þegar menn tóku æði, að þeyta möl í allar áttir. Ég man einna best þannig eftir Sigga Magg að taka æði. Athyglisvert pæling þetta með hvort menn væru meiri eða minni menn á eftir. Get einmitt ekki gert það upp við mig hvort mér þyki réttara, svona þegar litið er til baka.
En varðandi fynd við afgreiðslustúlkur þá er nú ekki hægt að sleppa því þegar ónefndur piltur fór í Kóp (Verslunin Vogar - eða The Dare Shop eins og hún ætti þá að heita á ensku) Þetta var fyrsta dag aprílmánaðar og hann sendi stúlkuna eftir ýmsum vörum sem hlóðust upp á afgreiðsluborðinu. Þegar brandarinn átti að koma - hrópa skyldi dagsetninguna og hlaupa út, þá brast minnið hroðalega og drengurinn pusaði út úr sér: "Allt í plati, rassagati!" og lét sig svo hverfa. Athyglisvert að þessi maður heldur einmitt með Freddie Ljungberg í dag, en reyndar bara í fótbolta, ekki hinu liðinu hans Freddies.

miðvikudagur, 13 desember, 2006  
Blogger Fjalar said...

Það þarf kannski að taka það fram fyrir þá sem ekki vita, að Freddie leikur einmitt oft með hinu liðinu.

miðvikudagur, 13 desember, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Ahh, Freddie! Sætur strákur.
Það má kannski benda þér á að ef þú værir Færeyingur værirðu nú sennilega orðinn brotlegur við lög vegna ummæla þinna um sænska nærbuxnamódelið.

Var alveg búinn að gleyma þessu atriði í búðinni. Yndislegt.

fimmtudagur, 14 desember, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters