Augu um augu frá augum...
Þá er fyrsta myndband Manna Ársins lagt fyrir dómstól götunnar. Þarna fara íslenski, franskir, tékkneskir og þýskir leikarar með burðarhlutverk. Hvergi sést í hljómsveitina, enda var leikstjórinn mjög áfram um það að hún kæmi þar hvergi nærri af listrænum ástæðum... eða svo sagði hann mér að minnsta kosti. Hvað sem því líður þá er útkomandi hrífandi og ferskur gustur í stöðluðum miðli sem hampar einna helst dillandi stelpurössum sem af ástæðum mér ókunnum hrífast einna helst af karlmönnum í hvítum íþróttagöllum með of mikið af skartgripum mæðra sinna um hálsinn.
Myndbandið er geymt á You tube, innsta herbergi, litli skápurinn til vinstri, þriðja hilla ofan frá, til hægri.
Eða bara hér:
http://www.youtube.com/watch?v=Mrhzw9pQDDE
Myndbandið er geymt á You tube, innsta herbergi, litli skápurinn til vinstri, þriðja hilla ofan frá, til hægri.
Eða bara hér:
http://www.youtube.com/watch?v=Mrhzw9pQDDE

2 Comments:
Já kall minn, ég er ánægður með þetta og skemmtilegt að þetta sé framleiðsla sem kemur alfarið frá Bjarnhólastígsfólkinu, ef hægt er að segja sem svo.
Hallo,
Nadi ad horfa og hlusta, baedi i einu ... thu veist hvad eg a vid Svafnir. Thetta er hrikalega flott og eg daudofunda ykkur.
Kaerar kvedjur til drengjanna,
Toti
Skrifa ummæli
<< Home