Erfitt að vera bæjarstjóri
Ekki veit ég hversu lengi maður getur horft upp á bæjarstjórann sinn haga sér eins og fíl í postulínsbúð sem heyrir það sem hann vill heyra, gerir það sem hann vill gera og skilur það sem hann vill skilja.
Eitt símtal í fyrrverandi framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur, sem gerði lítið annað en að hlusta og meðtaka það að til stæði að grafa lögn í gegnum Heiðmörk í ótilgreindri framtíð er að hans mati samþykki alls félagsins fyrir því að hægt sé að byrja að vinna. Koma svo með skóflurnar!!!!
Framkvæmdaleyfi frá Reykjavíkurborg er bara formsatriði sem þessir aular eiga fyrir löngu að vera búnir að útvega. Hana, láta vaða á draslið!!!!
Svo setur maður fyrirtækið sitt, ehemm… fyrirtækið Klæðningu í verkið og drífur hlutina áfram. Það er jú kappsmál fyrir Kópavog að selja Garðbæingum vatn.
350 trjám síðar rymur hann svo eins og illa upp alin frekjudós yfir því að lögin um Skógrækt séu bara svo afskaplega flókin að það sé bara ekki hægt að framfylgja þeim. (Einmitt og þú sast á þingi er það ekki? Þið vitið, í stóra húsinu þar sem lögin er búin til...)
Hann bendir á alla í kringum sig sem eru svo óforskammaðir að gera ekki eins og hann vill að þeir geri, skilja ekki eins og hann kýs að skilja, eða er kannski einfaldara að segja alla þá sem eru honum ekki sammála?
Það er ágætt að búa í Kópavogi en er ekki kominn tími á þennan þverhaus?

3 Comments:
Vel tekið saman minn kæri. Veit ekki afhverju umræðan um eigendur fyrirtækisins hefur ekki komið fram.
Það er ótrúlegt hvað hann kemst upp með að vaða yfir allt og alla. Endilega kjósið einhvern annan næst.
Er þetta ekki svona allstaðar nú. Mér finnst stjórnendur þessa lands og bæja, vaða yfir allt og alla og gera nákvæmlega það sem þeim sýnist.
Skrifa ummæli
<< Home