Aflakló

Showmannadagurinn í gær og þess vegna við hæfi að birta þessa mynd í dag. Stal henni af myndasíðunni hennar Þorkötlu frænku og bíð eftir að lögfræðingar hennar banki að dyrum.
Ég veit - sjálfsánægjulegt að birta myndir af sjálfum sér en það er líka ákveðin þjónusta við þá sem eru svo heppnir að sjá mig sjaldan og þufa kannski að minna sig á hvers vegna þeir vilja ekki sjá mig oftar.
Nú... svo er ég bara svo helv.. reffilegur með gulan þorskinn í klónum... nú er Hafró (Berist fram eins og Afró) búið að álykta um minnkandi veiðar. Ég hefði kannski átt að sleppa honum?
Ekki má gleyma því að hún Eva mín á afmæli í dag og eru henni hér með sendar sérstakar og einlægar afmæliskveðjur. Orðin 19 ára... vá... til lukku með daginn elskan mín!

3 Comments:
Geðveik mynd! .... og dagsetningin er mögnuð líka. ;-)
Til lukku með stúlkun minn kæri. Þú verður svo bara að draga úr veiðunum á þessu ári um þriðjung og málið er dautt.
Já til lukku!!
En í guðsbænum láttu af þessum veiðum, bréfin í kauphöllinni falla eftir skírslu Hafró...og stór hluti af því hlítur að skrifast á þig, abbbblakló!!
Skrifa ummæli
<< Home