Miðvikudagurinn 6. júní í Salnum nálgast

Þessir fallegu menn (og reyndar við Rikki líka) ætla að trylla lýðinn í Salnum í Kópavogi, næstkomandi miðvikudag. Þetta verður svona all the best frá Bandinu og leikið af fölskvalausri gleði, nostalgíu og næmni. Litlu hefur verið breytt, aðeins verið hróflað við einstaka lögum. Annars standast þessar lagasmíðar sumar merkilega vel... við nánari umhugsun held ég þó að ég sé ekki rétti maðurinn til þess að dæma um það. Líklegast blússandi vanhæfur ef útí það er farið.
Það magnaða hins vegar er það lagsmaður, að ríflega þriðjungur miða er þegar farinn út. Svo nú stefnir hraðbyri í það að uppselt verði í sætum í sal og þið sem haldið alltaf að þið komist upp með að gera allt á síðustu stundu þurfið eflaust að dúsa á efri hæðinni.
Ekki nema að þið drífið ykur:
Fyrir knattspyrnubullur er rétt að benda á að landsleik Íslendinga og Svía lýkur um klukkan 20.00, svo tímasetningin er stórfengleg. Fyrst bolti - svo bandið!

2 Comments:
Hvað kostar nú miðinn og þekkir þú kannske einhvern á midi.is sem gæti bjargað málum ef í hart fer?
Þetta er svo hræbillegt að það þarf engin kennsl til þess að verða sér úti um miða. Þúsarakvikindi og málið er dautt.
Skrifa ummæli
<< Home