Bryllup, Niflungar og hundar án merkipenna
Skemmtileg helgi að baki þar sem hæst bar að sjálfsögðu gifting Halla og Ellu með tilheyrandi fjöri. Athöfnin og veislan í framhaldi af henni fóru fram í Rúgbrauðsgerðinni að viðstöddu fjölmenni. Ég færðist ekki undan þegar óskað var eftir kröftum mínum til stjórnunarstarfa við veisluhöldin. Þarna var mikið af góðu fólki og margt forvitnilegt sem kom í ljós. Ég held þó að fagnaðarlæti veislugesta hafi verið mest þegar brúðhjónin sýndu, hvað mig varðar, áður óþekkta fimi á dansgólfinu og fórum mikinn í frekar óhefðbundnum brúðar... tjaa, ekki var það vals, .. við skulum segja í brúðardansi? Að sjálfsgöðu plokkuðu menn í hljóðfæri þó svo að brúðguminn hafi ekki haft brjóst í sér til þess beinlínis að biðja einhvern um að taka það að sér. Sviðið var einfaldlega "opið" og einstaka Buffarar og Menn ársins í bland og kross og sitt í hvoru lagi renndu í fáein lög.
Við feðgar vorum mjög spenntir fyrir seinni hluta Niflungahringsins. Fyrri hlutinn var á dagskrá fyrir viku. Eitthvað hefur verið plokkað í hringinn segja mér fróðir menn, Mér finnst bara gaman að heyra Hollywoodleikara með blá augu segja "Grímhildur" og "Brynhildur".
Eyþóri fannst seinni hlutinn sínu verri, enda engir bardagar og fjör, bara endalaus svik, undirferli og stofudrama.
Við Erla skruppum í sveitaheimsókn til hjónanna í Haga, skammt frá Flúðum a sunnudegi. Erla brá sér út að reykja í miðri heimsókn og gerði sér dælt við bæjarhundinn. Ekki er vitað hvort að það setti hann sérstaklega út af laginu en í kjölfarið gerði hann sér lítið fyrir, lyfti virðulega up afturfætinum og merkti sér hana... það fannst okkur hinum fyndið!

2 Comments:
Gáfður hundur greinilega. Hann hefur verið að reyna að slökkva í sígarettunni!
Hehehe...
:-D
Nibblungarnir voru ágætir og alveg datt mér í hug að þú hefðir gaman af þessari seríu : )
En fyrst of fremst gaman að sjá þig á ritvellinum á ný.
Skrifa ummæli
<< Home