03 október 2007

Vinur minn Tinni á hvíta tjaldið

Að ímynda sér uppvöxtinn án blaðamannsins Tinna og margvíslegra ævintýra hans er ógerningur. Svo samofinn hugmyndum mínum um heiminn var (og er) skapnaður Hergés að það er merkilega stutt síðan ég hætti að leita að Syldavíu á Evrópukortinu, eða gafst upp á að bera saman Sandinista og Pikkaróna.

Nú ætla Steven Spielberg og Peter Jakcson að bregða fyrir sig betri fætinum og leikstýra sitt hvorri myndinni í þríleik byggðum á ævintýrum Tinnna og verður ráðist í verkið fljótlega. Hver verður þriðji leikstjórinn er ekki vitað að svo stöddu. Það er heldur ekki ljóst hvaða þrjár bækur af þeim 23 sem til eru verða fyrir valinu.

Treysti mér ekki til þess að nefna þær þrjár bækur sem eru í uppáhaldi og ég vildi helst sjá á hvíta tjaldinu. Gæti nefnt þessar:


Blái Lótusinn
Skurðgoðið með skarð í eyra
Krabbinn með gylltu klærnar
Dularfulla stjarnan
og svo bókin þar sem Tinni er í skotapilsi að berjast við Górillu?
Tinni í Tíbet
já og alveg hellingur í viðbót - ég þarf greinilega að fara í skipulega endurupprifjun á þessum meistaraverkum bókmenntasögunnar.

Tinni í Kongó fannst mér aldrei neitt sérstök bók en hún gerði þó eitthvað fyrir mig. Merkilegra er kannski það sem hún gerði ekki fyrir mig; þeas. hún breytti mér ekki í rasista eða taldi mér trú um það að íbúar Afríku væru upp til hópa einfeldningar. Nú hafa einhverjir snillingar fundið það út að hana bæri að fordæma á altari pólítískrar rétthugsunar, osvei.

Hafi Tinni móðgað konur, heyrnadaufa, svarta, óperusöngvara, drykkjusjúka, dýravini, sjómenn, austurlandabúa, Akureyringa eða einhvern annan þá er mér slétt sama.




5 Comments:

Blogger Haraldur said...

Man sérstaklega eftir Leynivopninu þar sem Kolbeinn Kapteinn opnaði mér nýjar víddir...."Sjöþúsund sæskrímsl frá Súgandafirði"

fimmtudagur, 04 október, 2007  
Blogger Bjarney Halldórsdóttir said...

Tinna bækurnar voru aldrei í neinu sérstöku uppáhaldi hjá mér.

En um daginn las ég um fjársjóð Rögnvaldar Rauða og kom á óvart hversu skemmtileg sagan var. Það er greinilega komin tími til að endurnýja kynnin við þennan unga pilt.

Spennandi að sjá hvernig þeim tekst til með kvikmyndirnar.

fimmtudagur, 04 október, 2007  
Blogger BbulgroZ said...

Skotapilsbókin heitir Svaðilför til Surtseyjar... . )

fimmtudagur, 04 október, 2007  
Blogger Refsarinn said...

Var einmitt að fletta í gegnum stóran bunka af Tinna í MogM um daginn. Þurfti á allri minni skinsemi að halda til að fara ekki út með allan bunkan. Flugrás 714 til Sidney gæti ég trúað Spielberg til að vilja filma.

föstudagur, 05 október, 2007  
Blogger Refsarinn said...

PS. Tinni hefur greinilega aldrei troðið gyðing um tær annars væri Sielberg líklega ekki að fara í þessa framleiðslu.

föstudagur, 05 október, 2007  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters