26 september 2007

Nýtt starf, sama röddin

Ég er byrjaður að vinna á nýjum stað. Spennandi verkefni framundan, margt að læra og margt að skilja. Ekki spillir að fyrirtækið er til húsa í hinum hýra Hafnarfirði og ég er ekki lengur þátttakandi í hinum úrilla morgunakstri fjöldans sem þarf að komast í 101 og allir vilja vera fyrstir. Hreyki mér glaðbeittur hinum megin vegar og vinka röðinni sem undantekningarlaust hefur myndast frá Garðabæ og guð-veit-hvert á meðan ég renn átakalítið eftir malbikinu og dunda mér við að máta akreinar í rólegheitum. Seinni part dags hefur taflið snúist við en er ennþá mér í hag. Ég skondra heim óáreittur en bílamergðin flautast áfram úr gagnstæðri átt.

Menn ársins halda til Jótlands í nóvember þar sem huggulegt sveitastúdíó býður þess að verða vettvangur þrekvirkis þeirra. Þrekvirkis sem birtast mun landslýð í formi geisladisks fyrr en síðar. Það er hugur í mannskapnum og mikil tilhlökkun fyrir því að kasta sér út í intensíva 5 daga vinnu. Árangurinn verður ykkur væntanælega ljós fljótlega á næsta ári. Við leggjum ekki í jólaflóðið og tökum stenfuna á að verða menn ársins 2008. Gott ár skal það vera!

2 Comments:

Blogger BbulgroZ said...

Spennandi maður minn, spennandi...

miðvikudagur, 26 september, 2007  
Blogger Siggidóri said...

Ég er í ermalausum bol og þarf því ekki að bretta upp... en hlakka til að massa þetta! ;-)

kv. frá sveitabæ á Jótlandi.

miðvikudagur, 26 september, 2007  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters