Jesúbúðirnar
Athylisverð mynd á dagskrá RÚV í kvöld. Jesus Camp heitir sú og beinir sjónum sínum að kristilegum sumarbúðum í Norður-Dakota þar sem Becky nokkur Fisher stundar trúboð til ungra barna á þann veg að sumum þykir nóg um. Markmið trúboðsins er að þjálfa upp eitt stykki kynslóð kristinna "hermanna" (svona er það orðað) til þess að ná Bandaríkjunum aftur (væntanlega úr klóm heiðingjanna, eða trúleysingjanna)...
Það er eitthvað ónotalegt við það að sjá um það bil 6 - 10 ára gömul börn, ýmist í krampaköstum eða hágrátandi af einhverskonar túarlegri frygð á meðan Becky þessi talar um það að hún æski þess heitt að sjá sömu trúarsannfæringu hjá ungu kristnu fólki og ungum múslimum.
Einn áhorfandi lét hafa eftir sér að hann væri sannfærður um að nú væri útungunarstöð fyrstu kynslóðar kristinna sjálfsmorðsárásarmanna fundin..
En sýnishorn segja aldrei alla söguna. Ekki missa af Jesúbúðunum
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/?file=3493

3 Comments:
...blessi þig og varðveiti!
Vó... takk fyrir tipsið.
Ég held að ég láti það vera að horfa á þennan þátt. Aldrei gaman að horfa á fullorðiðfólk fara illa með börn
Skrifa ummæli
<< Home