28 febrúar 2008

Bækur sem ferðast frjálst

Við kaffivélina í leikhúsinu í morgun fann ég bók. Í koffínskortinum gaf ég henni ekki frekari gaum en um síðir þegar bollinn var kominn að vörunum og eituráhrifin fóru að lama stóra hluta heilans fékk ég loksins ráðrúm til skoða hana betur. Við mér blasti límmiði, kyrfilega merktur bookcrossing.com – the karma of literature. Sem sagt, síða þar sem haldið er utan um ferðir flökkubóka sem ganga manna á millum. Verandi helst til forvitinn stóðst ég ekki mátið og fór á síðunu og get nú rakið ferð bókarinnar. Ætla að fóstra hana í þann tíma sem það tekur mig að lesa hana og velja mér svo góða stað til þess að fleyta henni eitthvað áfram. Geri svo grein fyrir þessu á síðunni svo næsti maður getur séð hvar síðasti maður sleppti og þeir sem voru á undan í röðinni geti fylgst með ferðum hennar áfram. Svolítið eins og að merkja farfugl, bara skemmtilegra. Það er ekki einleikið hve spennan er mikil í lífi manns.

3 Comments:

Blogger Bjarney Halldórsdóttir said...

Hef heyrt um þetta. Virkilega sniðugt og skemmtilegt. Væri sjálf alveg til í að finna eina svona bók.

Hlakka til að frétta meira af bókinni sem þú fannst.

fimmtudagur, 28 febrúar, 2008  
Blogger Smútn said...

Þú getur líka sett bók í umferð. Veit samt ekki hvar maður kemur höndum yfir svona límmiða. Ætli heimasíðan hafi ekki svarið!

fimmtudagur, 28 febrúar, 2008  
Blogger BbulgroZ said...

Já þetta er gríðarskemmtilegt og dálítið mustískt.

laugardagur, 08 mars, 2008  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters